Við gerðum okkur glaðan dag (24.ágúst) og skruppum á kaffihús í Búðardal, nánar tiltekið Vínlandssetrið. Þar voru hjón frá Los Angeles að gæða sér á kræsingum og komu þau að tali við okkur og fannst yndislegt að hitta okkur. Þau starfa á svipuðu heimili og okkar og tóku ekki annað í mál en að bjóða okkur upp á kaffi, meðlæti og gott spjall. Við fengum að taka mynd af þeim með okkur og þökkum við þeim kærlega fyrir notalega samverustund og ekki síður fyrir gjafmildina.
Uppfært:
Þessi yndislegu hjón komu síðan til okkar í heimsókn á Fellsenda 🙂