Deildarstjórinn hleypur maraþon

Hann Gunnar Bergmann, hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri hjá okkur, tók sig til og hljóp hálft maraþon til styrktar Gleðistjörnunni þann 24.ágúst.

Gleðistjarnan er góðgerðarfélag sem stofnað hefur verið til minningar um Þuríði Örnu Óskarsdóttur sem lést þann 20. mars 2023. Tilgangur félagsins er að halda uppi minningu Þuríðar með því að gleðja systkini langveikra barna með gleðigjöfum og viðburðum.

Við óskum Gunnar til hamingju með þennan flotta árangur.