Anna Þóra 58 ára!

Í dag fagnaði Anna Þóra 58 ára afmæli sínu. Hún var búin að bíða mjög spennt eftir þessum degi í langan tíma og einnig búin að ákveða hvað hún vildi fá með kaffinu. Hún bauð öllum upp á dýrindis rjómatertu og var sko heldur betur ánægð með hana.

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, þá var hún virkilega ánægð með daginn sinn.

Innilegar hamingjuóskir í tilefni dagsins elsku Anna Þóra.