Fellsendamessa og utankjörstaðarkosning

Það var stíf dagskrá á heimilinu í dag þar sem starfsmenn Sýslumanns á Vesturlandi komu og opnuðu fyrir utankjörstaðarkosningu fyrir þá sem það vildu. Að því loknu var rokið af stað í Kvennabrekkukirkju þar sem haldin var Fellsendamessa.
Sr. Snævar tók þar á móti okkur og áttum við góða stund í kirkjunni.