Í dag fengum við góða heimsókn en það var hún Ásdís Óladóttir ljóðskáld. Hún las upp nokkur af ljóðum sínum og hlustuðum við af athygli.
Ásdís hefur fengist við ljóðagerð frá átján ára aldri og kom nýjasta ljóðabók hennar, Rifsberjadalurinn, út árið 2024 og var tilnefnd til fjöruverðlaunanna í flokki fagurbókmennta. Ásdís var greind með geðklofa rúmlega tvítug og fjallar meðal annars um reynslu sína af því að veikjast, leitina að skýringum og leiðina til betra lífs í þessari bók.
Fyrir áhugasama gefur hér að líta ritaskrá Ásdísar:
- 2024 Rifsberjadalurinn
- 2020 Óstöðvandi skilaboð
- 2015 Sunnudagsbíltúr
- 2014 Innri rödd úr annars höfði
- 2011 Mávur ekki maður
- 2006 Margradda nætur
- 2004 Einn en ekki tveir
- 2003 Teiknað í haustloftið
- 1998 Haustmáltíð
- 1995 Birta nætur
Við þökkum Ásdísi kærlega fyrir að kíkja í heimsókn til okkar og leyfa okkur að njóta ljóða hennar.





