Opnunarhátíð nýrrar Iðju

Í dag opnaði formlega ný aðstaða Iðjunnar-vinnustofu og var að því tilefni öllum íbúum og starfsfólki boðið að koma og skoða húsnæðið, hlýða á ljúfa tóna og þiggja glæsilegar veitingar.
Bjögga iðjuþjálfi byrjaði á að bjóða alla velkomna og hélt stutt ávarp. Sr. Snævar vígði húsnæðið, blessaði starfsemi þess og léku Árni og Anna fyrir okkur nokkur vel valin lög. Daníela Jóna, íbúi, klippti síðan á borðann fyrir okkur.

Húsnæðið sem var vígt í dag er tákn um nýtt upphaf og nýjar áherslur sem munu vonandi skapa það umhverfi sem hvetur til sköpunar, samvinnu og vellíðunar allra þeirra sem hingað koma. Á bak við þennan áfanga liggur mikil vinna og viljum við nota tækifærið og færa öllum þeim sem komið hafa að þessu verkefni kærar þakkir fyrir og þá einna helst stjórnum Fellsenda (bæði Minningarstjórn og Framkvæmdastjórn) fyrir að koma þessu í framkvæmd. Einnig viljum við þakka Árna húsverði kærlega fyrir elju hans og góð störf í okkar þágu sem og öllum þeim iðnaðarmönnum sem komu að uppsetningunni.
Nú liggur leiðin aðeins uppá við og hlakkar okkur til að sinna komandi verkefnum í þessu glæsilega rými.

Við óskum öllum innilega til hamingju með þennan frábæra áfanga.