Við höfum verið svo lánsöm að geta keypt ýmis tæki inn á heimilið fyrir gjafafé. Nýverið fengum við blöðruskanna, lyfjavagn og síðast en alls ekki síst, fjölþjálfa. Þessi tæki munu koma að góðum notum og þökkum við kærlega fyrir hlýhug og rausnarlegar gjafir til okkar. Það voru Kvenfélagið Fjólan og arfur frá Grétari Pálssyni sem gerðu okkur kleift að festa kaup á þessum nauðsynlegu tækjum.
Meðfylgjandi eru myndir af tækjunum