Þemadögunum okkar fjölgar og var ákveðið að bæta við regnbogadegi. Við héldum upp á hann í dag og brölluðum ýmsilegt. Eldhúsið stóð ekki á sínu og gerði frábæra köku…og súkkulaðið var ekki af verri endanum heldur 😉
Sr. Snævar kíkti í heimsókn til okkar í dag og spilaði meðal annars við Þröst, sem var einmitt nýbúinn að búa til sitt eigið spil.