SIÐAREGLUR FÉLAGS ÍSLENSKRA FÉLAGSLIÐA
Starf félagsliða felst í að efla og styðja sjálfstæða félagslega virkni, á heilbrigðis-, félags- og menntunarsviði. Veita stuðning og umönnun þar sem þarfir einstaklingsins eru hafðar að leiðarljósi. Skjólstæðingar félagsliða eru oftast einstaklingar eða hópar sem vegna röskunar á þroska, veikinda, öldrunar eða áfalla þurfa á stuðning og þjónustu að halda.
1. Félagsliði rækir störf sín af alúð, samviskusemi, trúmennsku og án þess að fara í manngreiningarálit vegna færniröskunar, kynþáttar, menningar, trúarbragða, aldurs, kynferðis, kynhneigðar, þjóðfélagsstöðu eða stjórnmálaskoðana skjólstæðinga sinna.
2. Félagsliði gætir fyllstu þagmælsku um þau mál sem hann kann að verða áskynja í starfi sínu. Undartekning frá þagnarskyldu má einungis gera með leyfi skjólstæðings eða samkvæmt lagaboði.
3. Félagsliði vinnur í nánu samstarfi við skjólstæðinga sína, virðir þekkingu þeirra og reynslu og tekur mið af þörfum þeirra, færni og aðstæðum.
4. Félagsliði vinnur af heilindum og heiðarleika í öllu starfi með hagsmuni skjólstæðinga sinna að leiðarljósi.
5. Félagsliði leitar samráðs við viðeigandi aðila telji hann að á rétt skjólstæðings sé gengið. Hann stuðlar að því í samvinnu við aðrar stéttir að skjólstæðingur (eða aðstandendur hans) sé upplýstur um rétt sinn.
6. Félagsliði leitast við að styðja skjólstæðinga sína við að finna eigin styrkleika í félags- og tómstundamálum og við daglegar athafnir.
7. Félagsliði leggur sitt af mörkum við að rjúfa félagslega einangrun skjólstæðings síns og stuðlar að heilsuvernd.
8. Félagsliði gætir virðingar stéttar sinnar innan sem utan vinnustaðar.
9. Félagsliði skal aldrei ræða með lítilsvirðingu um skjólstæðinga sína, samstarfsmenn eða vinnustað.
10. Félagsliði ræktar samvinnu við samstarfsstéttir og gagnrýnir þær ekki í áheyrn skjólstæðinga.
Félagsliðar skulu kynna sér ákvæði reglna þessara og leitast við að fylgja þeim í starfi. Telji félgasliði að samstarfsaðili vinni gegn hagsmunum skjólstæðings ber honum skylda til að tilkynna það viðeigandi aðila, hafi ábendingar og viðræður ekki borið árangur.