Okkar margrómaða þorrablót var haldið í dag og ef glöggir gestir síðunnar okkar etv. muna þá fengum við góðan gest (Árna Brynjólfsson) í fyrra til að spila og syngja fyrir okkur og það vill svo skemmtilega til að í dag er hann orðinn starfsmaður hjá okkur og munum við því reglulega njóta hæfileika hans. Hann tók nokkur vel valin lög fyrir okkur ásamt því að við gæddum okkur á dýrindis þorramat. Allir saddir og sælir í lok dagsins enda ekki við öðru að búast 😉
Við viljum þakka öllum þeim sem stóðu að þessu stórglæsilega þorrablóti okkar!
























