Það var viðburðaríkur dagur í dag þar sem strákarnir okkar í karla landsliðinu spiluðu leik á móti Slóveníu og hvöttum við þá að sjálfsögðu áfram með fánana okkar!!
Einnig var nýtt app/forrit tekið í notkun og þar af leiðandi ný afþreying eða þjálfun fyrir okkar fólk. Motiview heitir það og hefur það að markmiði að stuðla að aukinni hreyfingu, samskiptum, vekja upp minningar nú eða búa til nýjar og vekja áhuga einstaklinganna sem á það horfa.
Viðkomandi einstaklingur sest við hjól/fjölþjálfa sem er staðsett fyrir framan stórt sjónvarp og getur valið á milli fjölda myndbanda og upplifir að hann sé að hjóla á þessum stöðum sem sýndir eru í myndböndunum. Hægt er að velja staði bæði innanlands og utan. Við vonumst til að þetta forrit verði til þess að okkar fólk auki sína hreyfingu og hafi gaman í leiðinni. Það geta tveir hjólað í einu og þá verða oft til fjörugar samræður um staðsetningu myndbandsins.










