Það var oft gott veður í ágúst og nýttum við það vel. Ýmist var skroppið í Búðardal til að gæða sér á ís eða leikfimin tekin úti. En þegar það var kaldara þá höfðum við leikfimina bara inni 😉 Það er góð þátttaka í leikfimi hjá Helgu Dóru sjúkraþjálfara og Rosemary aðstoðarmanni hennar.










