Eins og vanalega er margt og mikið brasað hjá okkur og var september ekkert undanskilinn. Nýjar æfingar í Iðjunni-vinnustofu, hársnyrtir mætti á svæðið og við fengum skemmtilega heimsókn (hundurinn Dalton) og svo tók hann Eugene, starfsmaður, svona glæsilega mynd af Fellsenda og norðurljósunum.








