Bongó blíða á Fellsenda…dag eftir dag

Við höfum heldur betur verið heppin í veðra lottóinu því dag eftir dag hefur verið dásamlegt veður. Sólin dregur okkur öll út og bætir lund og geð. Sumir njóta þess að sitja í sólbaði meðan aðrir spila t.d. Boccia. En þegar líða fór á daginn og fólki orðið ansi heitt þá fór það að týnast inn og ákváðu nokkrir að spila Yatzy.

Í einum kaffitímanum var þetta æðislega smurbrauð eða eins og einn íbúinn segir alltaf: „Þetta var sko nammi namm!!“ 😉

Yndislegir svona dagar!