Trölladeig, körfubolti og ýmislegt fleira

Félagarnir, Dóri og Ingvar, voru duglegir í trölladeginu í dag. Þeir útbjuggu bæði „skinkuhorn“ og máluðu „kleinur“. Þetta er partur af verkefni sem þeir taka þátt í hjá Iðjunni-vinnustofu.

Þröstur bjó til spila“haldara“ sem auðveldar fólki að halda á spilum. Mjög flott hjá honum.

Seinna sama dag skrapp Þröstur út ásamt Guðmundi og léku þeir sér í körfubolta í dágóðan tíma. Þrátt fyrir að það væri frekar drungalegt utandyra að þá var heitt í veðri og því tilvalið að leika sér aðeins.